Í dag var gulur dagur í leikskólanum í tilefni þess að Norðurálsmótið í fótbolta byrjar með formlegum hætti. Við hófum daginn á sameiginlegri söngstund í skólanum þar sem sungin voru nokkur lög við góðar undirtektir barnanna. Elstu deildirnar Vök, Vogur og Vík gengu síðan að Jaðarsbraut til þess að fagna og fylgjast með skrúðgöngunni sem fylgdi settningu Norðurálsmótsins. Mikið stuð og margir ÍA fánar á hliðarlínunni.