Gleði á fögrum sumardegi

Sólardagar sumarsins halda áfram að leika við okkur og dásamlegt að leika úti og hlaða hjartað af sólar-súrefni. Í dag var ýmislegt í boði á leikskólalóðinni ; sulla í vatnskari, mála á trönum, hoppa á trampólíni og fara í kollhnís á stóru dýnunni. Allir voru glaðir og nutu sín vel með vinum sínum. Þá fór 2012-árgangurinn á Vík og Holti í skógræktina og fengu hádegismatinn til sín þangað svo áfram væri hægt að njóta náttúrunnar, góða veðursins og skemmtilegra leikja með vinum sínum. Skoða myndir