Gjöf frá foreldrafélaginu

Í gær komu fulltrúar foreldrafélagsins og færðu börnunum og leikskólanum fimm jafnvægishjól að gjöf. Það voru glöð og spennt börn sem tóku á móti þessari höfðinglegu gjöf frá foreldrum í Garðaseli. Kærar þakkir fyrir okkur , það er ómetanlegt að hafa svona bakhjarl í leikskólastarfinu.