Fyrirmyndardagur Vinnumálastofnunar

Vinnumálastofnun stendur fyrir Fyrirmyndardeginum og verður hann haldinn þann 08. apríl n.k. Þann dag hafa fyrirtæki og stofnanir tækifæri á að bjóða atvinnuleitendum með skerta starfsgetu að vera gestastarfsmenn í einn dag eða hluta úr degi. Upphaflega hugmyndin um þennan sérstaka dag er að írskri fyrirmynd. Þar hafa samtök Atvinnu með stuðningi innleitt Job Shadow dag með góðum árangri. Á þessum degi hafa atvinnuleitendur með skerta starfsgetu fengið tækifæri til að kynna sér fjölbreyttan starfsvettvang auk þess sem forsvarsmenn fyrirtækja hafa fengið tækifæri á að kynnast styrkleikum þeirra. Fyrirmyndardagurinn er mikilvægur liður í því að auka möguleika fólks á fjölbreyttri atvinnuþátttöku. Á morgun verður Kristjana Björnsdóttir hjá okkur í Garðaseli frá kl: 9.00-12.00