Föstudagur og helgarfrí

Föstudagur og framundan er helgarfrí og styttist í páskafríið.

Vikurnar líða á ógnarhraða hér í Garðaseli, alltaf nóg að gera og viðfangsefnin fjölbreytt og skemmtileg.

Við flytjum á efri hæðina á mánudaginn og þá lýkur þessari vegferð sem við höfum öll beðið eftir. 

Lóðin er ennþá í vinnslu og við bíðum eftir því að fá hana fullunna til notkunar - það verður gaman.

Minnt er á þá góðu og kurteislegu reglu að ef börnin eru í fríi að skólinn fái upplýsingarum það, daglega þegar það á við eða með fyrirvara ef fríið er lengra.