Í dag voru flutningar á milli deilda í Garðaseli til að búa til pláss fyrir yngstu börnunum sem hefja aðlögun 12. ágúst. Mikil spenna og gleði var í barnahópnum og allir hjálpuðust að við flutningana.
Þetta skólaárið erum við með tvær deildir í elsta árgangi og þær halda áfram að vera á efri hæðinni. Þetta voru deildirnar Vogur og Vök sem við köllum í dag Vík og til aðgreiningar, Krossvík og Kalmansvík. Það eru einnig tvær deildir með börnum í næsta elsta árgangi en það voru deildirnar Holt og Hóll. Þessar deildir munu vinna mikið saman í vetur og verða staðsettar á Hóli sem nú verður kallaður Álfahóll og í salnum sem verður kallaður Hulduhóll.