Fjölskyldum barna boðið í heimsókn

Nú munu deildir senda boð til fjölskyldna Garðaselsbarnanna um heimsókn í skólann.

Lítið hefur verið um slíkt í vetur af ýmsum ástæðum en nú er tækifæri.

Foreldrar, systkini og ömmur og afar eru velkomin í heimsókn á deildir barnanna þann dag sem deildin býður.

Hlökkum til að sjá sem flesta og fá að leyfa fjölskyldum að skoða skólann okkar fallega.