Endurskinsmerki að gjöf

Endurskin gangandi vegfarenda er aldrei of mikið og getur bjargað mannslífum. Í dag fengu öll Garðaselsbörnin endurskinsmerki að gjöf frá Slysavarnardeild kvenna hér á Akranesi. Við þökkum fyrir góða gjöf og allt það góða starf sem félagið stendur fyrir hér á Akranesi.