Elstu börnun vel fagnað við heimkomu

Elstu börnin fóru í sína útskriftarferð í Skorradalinn 12. -13. maí og áttu þar skemmtilega og viðburðarríka daga. Sumir voru að sofa í fyrsta skipti án mömmu og / eða pabba og það var nú ekki vandamál hjá þessum flottu krökkum. Allir stóðu sig vel og upplifðu saman í vináttu náttúruna, sögurnar, leikina og margt fleira. Þegar heim var komið beið þeirra móttaka af bestu gerð - spenntir foreldrar, börnin í Garðaseli og starfsfólk með blöðrur og söng.