Elstu börn á tónleika í Hörpunni

Í morgun var gengið frá skráningu á boðstónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu , Veiða vind, sem er færeykst tónlistarævintýri fyrir elstu börn leikskóla. Ævintýrið er kraftmikið og heillandi og byggir á minningu um riddarann Ólaf Liljurós og hetjudáðir hans. Búið er að panta rútu og nú er ekkert annað en hlakka til spennandi ferðar og ævintýris.