Diskó-gleði á föstudegi

Í dag var diskó-gleði í leikskólanum og allir glaðir. Börn og starfsfólk mætti með hatta, sólgleraugu, hárbönd eða annað fínerí. Glaumbær var skreyttur og diskóljós sett upp til að skapa stemningu. Síðan var dansað eftir gömlum diskólögum og marserað um Skálann. Það er óhætt að segja að mikil gleði hafi ríkt fyrir hádegi eins og sjá má á myndunum. Stutt myndband frá gleðinni má sjá á Facebook-síðu skólans