Dagur leikskólans

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar og hefursvo verið gert um langt árabil.

Sjötti febrúar á sér þó lengri sögu og merkilegri því á þessum degi 1950 stofnuðu fumrkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að faglega og metnaðarfulla starfi sem unnið er í leikskólum landsins á hverjum degi.

Í Garðaseli fögnuðum við deginum með sameiginlegri söngstund á Skála þar sem börn og starfsfólk kom saman.