Barnamenninghátíð Akraneskaupstaðar 23.-31. maí 2024.

Barnamenningahátíð Akraneskaupstaðar verður haldin hátíðlega dagana 23.-31. maí 2024.  Þema hátíðarinnar er SKRÍMSLI.  Yfir hátíðina verða í boð spennandi smiðjur, skemmtun og samverustundir fyrir börn og fjölskyldur þeirra.  Hægt er að sjá dagskrá hátíðarinnar inn á www.skagalif.is

Börnin á Vík eru búin að vera að vinna í verkefninu og bjuggu til Fjöruskrímsli úr þeim efnivið sem þau fundu í fjörunni í  Kalmansvík.