Aðventustund á Skála

Í morgun var fyrsta aðventustundin og sáu Víkarar um hana. Þau mættu öll með jólasveinahúfur, sungu falleg jólalög með krökkunum og kveiktu á spádómskertinu. Síðan lásu nokkrir Víkarar stutta sögu og gaman var að heyra hvað þau eru orðin dugleg að lesa.  Sjá myndir á myndasíðu leikskólans og líka Víkur.