Allir saman á ný

Yndislegur dagur og það sem var dásamlegt að fá að hitta öll börnin sem komu glöð og kát í leikskólann. Eins og sum hafi farið í gær þrátt fyrir að hafa verið fjarverandi í margar vikur. Gleðin í barnahópnum var líka einlæg þegar vinir hittust á ný, léku sér saman og höfðu frá mörgu að segja. Áfram hvetjum við fólk til gæta vel að sóttvörnum og sýna skynsemi í allri umferð í samfélaginu okkar ? berum ábyrgðina saman !