Akranes hlýtur viðurkenningu sem Barnvænt sveitafélag.

Þann 2. júní 2025, fékk Akraneskaupstaður formlega viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Barnvænt sveitafélag.

Þetta markar mikilvægan áfanga í þeirri vegferð bæjarins að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla stjórnsýslu og starfsemi sveitafélagsins.  Allir skólar fengu viðurkenningaskjal sem staðfestir þátttöku þeirra í verkefninu, ásamt leikjakössum með sumardóti til að hvetja til leikgleði og útivistar.  Þessi viðurkenning er staðfesting á því að Akraneskaupstaður leggur metnað í að skapa samfélag þar sem börn njóta virðingar, öryggis og hafa tækifæri til að hafa áhrif á eigið líf og umhverfi.

Hér fyrir ofan er mynd af fulltrúum frá UNICEF afhenda Akraneskaupstað viðukenningarskjöld ásamt flottum krökkum í Garðaseli.