Haldið var upp á 35 ára afmæli Garðasels þann 1. september. Upphaflega var starfsemi Garðasels til húsa að Lerkigrund 9 en færðist yfir í nýja leikskólann í byrjun árs 2024. Til að halda upp á daginn komu börn og starfsfólk í búningum eða náttfötum í skólann. Dagskráin byrjaði á sameiginlegri söngstund í salnum og þar á eftir haldið ball. Eftir það var flæði í húsinu þannig að börnin á eldir deildunum gátu farið um skólann og leikið að vild. Boðið var upp á pizzu og afmælisköku í tilefni dagsins.