Aðlögun 2022-barna frestast um þrjá daga

Fresta þarf aðlögun 2022- barnanna í Garðaseli um þrjá daga vegna tafa á afhendingu stóla og borða á deildirnar tvær.

Aðlögun átti að hefjast fimmtudaginn 10. ágúst með fyrstu heimsókn hópsins en færist til þriðjudagsins 15. ágúst. Sama skipulag aðlögunar mun halda sér en færast á milli þessara daga.

Foreldrar fengu upplýsingar um þetta fyrir tveimur vikum en alltaf er erfitt þegar breyta þarf áætlunum sem snerta marga.