30 ára afmæli Garðasels

Miðvikudaginn 1. september n.k. fagnar Garðasel 30 ára afmæli og munum við fagna þeim tímamótum í leikskólanum. 

Í Covid verða hátíðarhöldin lágstemmdari en ella og því miður getum við ekki boðið gestum að koma til okkar. En dagurinn verður okkur sem erum í Garðaseli skemmtilegur með skreytingum, búningum, söng- og dansstund á Skála og svo verður pítsa í hádegismatnum og afmæliskaka í síðdegishressingunni.