Sumarhátíð foreldrafélagsins verður haldin í Garðaseli, miðvikudaginn 15. maí kl. 15-17. Foreldrafélagið ætlar að vera með fjáröflun þennan dag, þar sem félagið er að safna fyrir gróðurhúsi til að setja á lóð leikskólans. Hægt verður að kaupa varning og einnig verður hægt að kaupa léttar veitingar. Íþróttaálfurinn mætir á svæðið. Allir að taka daginn frá, hlökkum til að sjá ykkur. Kveðja frá foreldrafulltrúum Garðasels.