ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Strákur: - Afi minn er alveg ruglaður.... hann er alltaf  að skrökva.  Starfsmaðurinn: - Er það satt ?   Strákurinn: - Jáhá, hann segir að konurnar í leikskólanum séu feitabollur !!!!

 

Forsíða :: Um skólann :: Uppeldi til ábyrgðar
Prenta vefsíðu

Uppeldi til ábyrgðar

 

Leikskólinn hefur ákveðið að hefja innleiðingu uppbyggingarstefnunnar í skólastarfinu. Höfundur stefnunnar er Diane Gossen en hún segir:

" Haltu því sem þú kannt, bættu við nýrri þekkingu "

 

Uppbyggingarstefnan er aðferð til að ýta undir jákvæð samskipti. Hún byggir á að ná samstöðu um lífsgildi og fylgja þeim eftir með fáum skýrum reglum.

Uppbyggingarstefnan miðar að því að kenna börnum og unglingum sjálfstjórn og sjálfsaga. Að læra af eigin orðum og gerðum og læra af mistökum í samskiptum.

 

Þarfahringurinn skilgreinir fimm grunnþarfir og það er mismunandi hversu ríkjandi þær eru hjá einstaklingum. 

   

Hvernig birtast þarfirnar ?

  • Gleði : hlátur, bros, sköpun, hamingja, orka 
  • Umhyggja og ást: fjölskylda, vinátta traust, hjálpsemi
  • Áhrif: skipulag, örugg framkoma, taka ákvarðanir
  • Frelsi: kanna nýja möguleika, taka áhættu, jákvæðni, tjá tilfinningar
  • Öryggi: húsaskjól, fæði, klæði, reglur

Allir eiga rétt á því að komið sé til móts við þarfir þeirra í skólanum. Mikilvægt

er að gera sér grein fyrir því hvaða þörf er sterkust hjá hverjum og einum.

 

 Jákvæð samskipti

  • sýna vinsemd og hlusta
  • horfa til nútíðar og framtíðar
  • tengja líðan á líkama og sál við hugsun, orð og gerðir
  • hlusta ekki á afsakanir fyrir óábyrga hegðun
  • forðast að refsa og gagnrýna

Spyrja - ekki segja

  • nota opnar spurningar
  • forðast að hnýta svari aftan við spurningar ( er það ekki ?)
  • orðin sem við notum hafa 10 % vægi
  • tónninn sem við notum hefur 35 % vægi
  • líkamstjáningin sem við notum hefur 55 % vægi

 

 

             
i

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is