English
Dansk
Polski
ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
Stærra letur Minna letur

Gerðu ávallt ráð fyrir því besta og gerðu þitt besta

 

Stofnun Ársins 2012

Á aðventunni erum við að skoða fjárhúsið með jötunni og Jesú-barninu. Eitt barnið spyr af hverju Jesús liggi í svona grasi og rifjað er upp af hverju Jesú-barnið fæddist í fjárhúsi. Þá segir einn strákurinn undrandi: - Það er enginn Jesú í kindahúsinu hans afa !! ( afinn býr í sveit)

 

Forsíða :: Um skólann :: öryggi
Prenta vefsíðu

Öryggi í leikskólanum

 

 

 

Í leikskólanum er skilgreind viðbragðsáætlun vegna slysa sem gætu orðið, s.s.  tilkynningar til foreldra ,slysaskráning, heimsóknir á slysavarðstofu, útkall sjúkrabíls. Starfsmenn fá með reglubundnu millibili  þjálfun í Hjálp í viðlögum þar sem kennd eru viðbrögð við algengustu slysum. Á hverri deild er handbók um fyrstu hjálp þar sem á starfsfólki er leiðbeint á einfaldan hátt í gegnum fyrstu viðbrögð og síðan hvert framhaldið skuli vera.

 

Rýmingar- og brunavarnaráætlun er til fyrir allan skólann og er skipulagið sýnilegt öllum starfsmönnum s.s. á deildum og í eldhúsi. Rýming skólans er ekki æfð með börnunum og er ástæðan sú að sum verða mjög hrædd og óttast að eldur sé í alvörunni í leikskólanum. Mest um vert er að starfsmenn þekki hlutverk sitt vel og bregðist rétt við.

 

Starfshættir eru skilgreindir með þeim hætti að starfsmenn skuli hafa góða yfirsýn yfir aðstæður og barnahópinn og aldrei að setja börn í tvísýnar aðstæður.

 

Rýmingaráætlun vegna bruna              Handbók um fyrstu hjálp                         
Umferðaröryggi barna Slys, slysaskráningar, útkall sjúkrabíls

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is