English
Dansk
Polski
ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
Stærra letur Minna letur

Gerðu ávallt ráð fyrir því besta og gerðu þitt besta

 

Stofnun Ársins 2012

Starfsmaður var að " skamma" eitt barnið sem hafði verið með læti. Þá kemur strákur til starfsmannsins og segir: - Þú mátt ekki skamma hann, hann hættir kannski bara.

 

Prenta vefsíðu
22. febrúar 2012

Öskudagur.......gaman, gaman

Engum ætti að leiðast á öskudag því margt skemmtilegt er í boði sem vekur gleði og kátínu. Í Garðaseli var náttfatadagur og allir mættu í eða með náttfötin sín, þeir sem vildu fengu andlitsmálningu og síðan komu kúrudýr og bangsar með í skólann. Á Skála var öskudagsskemmtun með marseringu og dansi þar sem eldri börnin tóku að sér yngri börnin.  Síðan tók veiðiferðin góða við en þá fá öll börnin að reyna að veiða popp-poka en fá ýmislegt annað á færið ; húfur, bleyjur, sundföt, vekjaraklukku og banana svo eitthvað sé nefnt. Eins og sjá má á myndunum var mikið fjör og allir glaðir með daginn. Myndir 

- gleði og gaman á öskudag -

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is