ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Starfsmaður var að ýta börnunum í rólunum í leiknum Hvert á ég að senda þig ?. Strákur bað um að vera sendur til Ystalands.
Hvar er það? spyr starfsmaðurinn. - Jú ,sko, það er nefnilegasta síðasta landið í heiminum.

 

Prenta vefsíðu
25. janúar 2012

Þorrablót í Garðaseli

Í hádeginu var þorrablót í leikskólanum þar sem boðið var upp á heitt slátur í aðalmat og síðan var smá hlaðborð með  bökkum af  þorramat, nýjum og súrum. Flestir fengu sér sviðasultu, hangikjöt og harðfisk og nokkrir fengu sér súra matinn og hákarlinn.

Börnin höfðu gert sér höfuðföt í tilefni dagsins og skörtuðu þeim í tilefni dagsins. Þessa dagana er verið að vinna með gamla tímann og þorrann og fræðast um það hvernig hús, búnaður og matur voru hér áður fyrr.  Myndir

Þorrablót í Garðaseli

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is