3. september 2010
Foreldranámskeið um árangursríkt uppeldi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands- Akranesi (HVE) heldur námskeið fyrir foreldra sem ber heitið Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar og hefst það 14. september næstkomandi.
Námskeiðið miðar að því að skapa sem best uppvaxtarskilyrði fyrir börn með því að kenna foreldrum jákvæðar og árangursríkar uppeldisaðferðir. Námskeiðið byggir á Uppeldisbókinni og er hún innifalin í námskeiðsgjaldinu. Nánar upplýsingar um námskeiðið er hægt að nálgast hér.