ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Börnin voru að spila Ólsen Ólsen. Þegar spilinu var lokið segir eitt barnið: - Ég ætla að fara aftur í ! Þá gall í öðru: -Ég ætla fram í.

 

Prenta vefsíðu
1. september 2010

Virkir foreldrar, betri leikskóli

Samtökin heimili og skóli hafa gefið út bækling sem heitir Virkir foreldrar, betri leikskóli. Þar er fjallað um þátttöku foreldra í leikskólastarfinu og rætt um að  áhugi, ábyrgð og áhrif foreldra á skólastarfið auki jákvætt viðhorf til náms og skólagöngu barna og efli þannig almenna velferð þeirra. Hægt er að nálgast bæklinginn hér á þessari krækju http://www.heimiliogskoli.is/media/files/1198892159/Leikskolinn.pdf 

Á foreldrafundum deilda nú í lok september verður leitað eftir foreldrum til starfa í foreldrafélagi og foreldraráði leikskólans en þrír foreldrar starfa í foreldraráði og fjórir í foreldrafélagi.

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is