ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Krakkarnir í leikskólanum komu við í kirkjugarðinum á leið heim úr gönguferð. Þau voru að spá í hvaða amma og afi væru dáin. Þá segir eitt barnið: -  Amma mín og afi fara bráðum hingað. Starfsmaðurinn: - Nei, nei, það er langt þangað til ,þau eru ekkert gömul. Þá svarar barnið mæðulega:-Hefurðu séð þau nýlega ?

Prenta vefsíðu
2. júlí 2010

Írskir dagar á Akranesi

Leikskólabörn tóku þátt í að setja Írska daga á Akranesi. Börn frá öllum leikskólunum á Akranesi komu saman upp á Safnasvæði þar sem þau mynduðu írska fánann með því að vera í bolum í fánalitunum. Guðmundur Páll setti hátíðina og Ingó úr Veðurguðunum kom og söng með börnunum nokkur lög. Augljóst var að hann er mjög vinsæll meðal barnanna og þau áttu ekki í vandræðum með að taka undir sönginn. Á eftir fengu allir safa og kleinur. Hægt er að sjá myndirnar í myndasafninu.

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is