English
Dansk
Polski
ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
Stærra letur Minna letur

Gerðu ávallt ráð fyrir því besta og gerðu þitt besta

 

Stofnun Ársins 2012

Krakkarnir í leikskólanum komu við í kirkjugarðinum á leið heim úr gönguferð. Þau voru að spá í hvaða amma og afi væru dáin. Þá segir eitt barnið: -  Amma mín og afi fara bráðum hingað. Starfsmaðurinn: - Nei, nei, það er langt þangað til ,þau eru ekkert gömul. Þá svarar barnið mæðulega:-Hefurðu séð þau nýlega ?

Prenta vefsíðu
21. júní 2010

Sigurvegarar á Norðurálsmóti 2010

Hópur af strákum á Víkinni tók þátt í Norðurálsmótinu í knattspyrnu sem fram fór á Akranesi nú um helgina. Þessir strákar voru stoltir þegar þeir mættu í leikskólann í morgun með bikar eftir helgina. Þeir unnu Spænsku deildina í hópi F-liða  og voru afar glaðir með það. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn og erum stolt af því að eiga svona fliotta fulltrúa. Strákarnir eru : Ólafur Haukur, Jóhannes Breki, Ingi Þór, Davíð Ernir, Ellert Lár, Aron Elvar og Kristófer Áki. Þá var Ármann Ingi einnig í hópnum en hann hætti í Garðaseli í síðustu viku og vantar því á myndina. Myndir

 

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is