ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Á aðventunni erum við að skoða fjárhúsið með jötunni og Jesú-barninu. Eitt barnið spyr af hverju Jesús liggi í svona grasi og rifjað er upp af hverju Jesú-barnið fæddist í fjárhúsi. Þá segir einn strákurinn undrandi: - Það er enginn Jesú í kindahúsinu hans afa !! ( afinn býr í sveit)

 

Prenta vefsíðu
18. júní 2010

Gjöf til leikskólans frá útskriftarbörnum og foreldrum þeirra

Á miðvikudaginn komu foreldrar útskriftarbarna og færðu leikskólanum peningagjöf með þakklæti fyrir góða umönnun á leikskólaárum barnanna. Það er alltaf gott þegar leikskólanum er sýndur slíkur hlýhugur í orði og verkum og hvetur okkur áfram til góðra verka. Leikskólinn vill færa foreldrum útskirftarbarna kærar þakkir fyrir hlýhuginn en ekki síst fyrir ómetanlega góðar stundir og samstarf. Hér má lesa hina hlýju kveðju foreldra og barna. 

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is