ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Krakkarnir í leikskólanum komu við í kirkjugarðinum á leið heim úr gönguferð. Þau voru að spá í hvaða amma og afi væru dáin. Þá segir eitt barnið: -  Amma mín og afi fara bráðum hingað. Starfsmaðurinn: - Nei, nei, það er langt þangað til ,þau eru ekkert gömul. Þá svarar barnið mæðulega:-Hefurðu séð þau nýlega ?

Prenta vefsíðu
11. júní 2010

Gaman á sundnámskeiði

Þessa vikuna hafa glaðir krakkar á Víkinni skundað í Jaðarsbakkalaug á sundnámskeið hjá Röggu Run en námskeiðið er hluti af hreyfingunni í Garðaseli. Veðrið er búið að leika við okkur þessa daga og börnin hafa svo sannarlega haft gagn og gaman af sundinu og margir sigrar unnist, stórir og smáir. Orðatiltækið að taka í nefið öðlaðist nýja merkingu því margir krakkana héldu grimmt í nefið þegar farið var í kaf en voru farin að þora að sleppa því í lokin. Eins og sést á myndunum var bara dásamlegt að fá að vera í lauginni í þessu góða veðri, læra að vera í vatninu og láta Röggu kenna sér sporð, beygja-kreppa- sundur- saman, gera spjót og stinga sér og margt margt fleira. 

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is