English
Dansk
Polski
ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
Stærra letur Minna letur

Gerðu ávallt ráð fyrir því besta og gerðu þitt besta

 

Stofnun Ársins 2012

Sko, þegar nóttin var búin og ljósin slökknuðu, þá var dagurinn vaknaður 

Prenta vefsíðu
28. maí 2010

Útskrift elstu barna

Í gær var útskriftarháíð elstu barnanna í leikskólanum og var það sannkölluð hátíðarstund fyrir alla. Börn og starfsfólk buðu foreldrum til góðrar skemmtidagskrár sem fram fór í sal Grundaskóla. Leikrit, samsöngur og einsöngur, dans  og bjöllukór gerðu mikla lukku og óhætt að segja að börnin hafi svo sannarlega sýnt hvað í þeim býr. Frábær hópur sem þar er á ferð. Hvert barn fékk síðan afhenta útskriftarbók með verkum frá upphafi leikskólagöngu og til loka hennar og einnig fylgdi bókinni myndadiskur með myndum frá leikskólagöngunni og sér mappa frá ferðinni í Skorradalinn. Að lokinni dagskrá í Grundaskóla var haldið í Garðasel og þar beið allra glæsilegt veisluborð í boði foreldranna. Leikskólinn færir foreldrum og börnum kærar þakkir fyrir einstaklega vel heppnaðan dag. Myndir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is