ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Starfsmaður var að ýta börnunum í rólunum í leiknum Hvert á ég að senda þig ?. Strákur bað um að vera sendur til Ystalands.
Hvar er það? spyr starfsmaðurinn. - Jú ,sko, það er nefnilegasta síðasta landið í heiminum.

 

Forsíða :: Um skólann :: dyggðanám
Prenta vefsíðu

Í leikskólanum er lögð áhersla á gæði í samskiptum og að bæði börn og starfsfólk tileinki sér ákveðin lífsgildi sem leggja grunn að velliðan einstaklingsins í samskiptum við aðra . Í nútíma samfélagi er mikilvægt að tileinka sér víðsýni, umburðarlyndi, jákvæðni, hjálpsemi, gleði og vináttu svo eitthvað sé nefnt. Þessi lífsgildi ásamt mörgum öðrum eru lykilatriði þess að tilheyra lýðræðislegu samfélagi sem tekur tillit til allra, án tillits til kyns, litarháttar, menningar eða fötlunar.

 

 

 

 

 

 

Lífið er leikur  - lífsleikni og dyggðanám

Dyggðanámið er rauður þráður í daglegu starfi og er ætlað að auka færni barna og fullorðinna í samskiptum og styrkja einstaklinginn. Dyggðanám er mikilvægur hluti daglegs lífs og hafa fjórar dyggðir verið valdar til að vinna með á skólaárinu ; jákvæðni, hjálpsemi, glaðværð og vinátta.  Hver dyggð á sinn dyggðavísi sem skilgreinir dyggðina og hvernig hægt er að vinna með hana í daglegu lífi og samskiptum okkar hvert við annað.  Foreldrar fá eintak af dyggðavísunum og geta þannig tekið þátt í dyggðanáminu með börnum sínum því það er sjálfsagður réttur þeirra að taka þátt í að móta lífsgildi barna sinna. 

 

Elsti árgangurinn í leikskólanum fer í gegnum námsefnið Stig af stigi sem hefur það markmið að kenna börnunum að ná tökum á tilfinningum sínum og skilgreina þær í aðstæðum

 Jákvæðni

Hjálpsemi

Vinsemd           

Glaðværð           

Kurteisi

Samkennd

dyggðavísir

dyggðavísir

dyggðavísir

dyggðavísir

dyggðavísir

dyggðavísir

jákvæðnispjöld

hjálpsemispjöld

vinaspjöld

söngtextar

söngtextar

söngtextar

                                   

                                

söngtextar          

gleðispjöld

 hvar og hvernig  

samkenndarspjöld

 

gleðispjöld                                     

samkenndarspjöld

 Foreldraboðorðin Leiðarljós í samskiptum         Stig af stigi

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is