Hæ hæ, flensan hefur kíkt í heimsókn til okkar á Vík og hafa 11 börn verið veik það sem af er þessari viku. Þetta er ansi skæð flensa og viljum við biðja ykkur foreldra um að gefa þeim a.m.k. einn dag heima hitalaus áður en þau koma aftur í leikskólann, því að þau eru mjög slöpp og úthaldið lítið eftir veikindin.
-Ljósadagurinn gekk vel hjá okkur og voru vasaljósin mikið notuð. Þau fóru líka út að leika með þau.
-Veðrið hefur aðeins sett stik í útiveruna hjá okkur síðustu daga og vikur og höfum við ekki komist út í íþróttahús í hreyfistund. Við höfum þess vegna sett upp hreyfibraut hér í leikskólanum og skipt börnunum niður í hópa.
-Krakkarnir í Sonjuhóp hafa verið að leika sér í einingakubbunum og bjuggu til ýmislegt sem tengist bænum okkar, virkilega skemmtileg vinna sem þar fer fram.
Við biðjum að heilsa öllum og vonandi koma allir sem fyrst aftur á leikskólann.