ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Starfsmaður var að " skamma" eitt barnið sem hafði verið með læti. Þá kemur strákur til starfsmannsins og segir: - Þú mátt ekki skamma hann, hann hættir kannski bara.

 

Forsíða :: Nemendur :: Lón :: söngtextar
Prenta vefsíðu

Söngtextar

 

Hér eru settir inn söngtextar sem við  syngjum á Lóninu:

 

Halli

Haldið ekki´ að Halli komi´ á grúfunni,

á heljarstökki fram af einni þúfunni.

Hann fór það bara fínt,

en hélt hann hefði týnt

gleraugunum, höfðinu´ eða húfunni

 

 

 

Hátt upp´í fjalli

Hátt upp´í fjalli þar búa þrjú tröll:
Tröllapabbi, tröllamamma og litli Trolli tröll.

BÖÖHH!! segir pabbi tröll.

Bööhh!! segir mamma tröll,

en hann litli Trolli tröll, 

hann segir bara: bööhhhhh!! (hvíslað).

 

 

Brunaliðið, köttur ....

Ba, bú, ba, bú, brunabíllinn flautar.
Hvert er hann að fara ?
Vatn á eld að sprauta - tss, tss, tss, tss!
Gerir alla blauta.

Mjá, mjá, mjá, mjá, mjálmar gráa kisa.
Hvert er hún að fara ?
Út í skóg að ganga - uss, uss, uss, uss!
Skógarþröst að fanga.

Bí, bí, bí, bí, skógarþröstur syngur.
Hvert er hann að fara ?
Burt frá kisu flýgur - víí, víí, víí, víí!
Loftin blá hann smýgur

 

 

Í upphafi söngstundar

Halló krakkar, halló krakkar,

velkomin í dag.

Gaman er að sjá ykkur

og gaman er að fá ykkur.

Halló krakkar, halló krakkar,

velkomin í dag.

 

Í lok söngstundar

 Jæja krakkar, jæja krakkar,

takk fyrir í dag.

Gaman var að sjá ykkur

og gaman var að fá ykkur.

Jæja krakkar, jæja krakkar,

takk fyrir í dag.

 

Fingurnir

Þumalfingur, þumalfingur

hvar ert þú?

Hér er ég, hér er ég.

Góðan daginn, daginn, daginn.

 

Vísifingur, vísifingur

hvar ert þú?

Hér er ég, hér er ég.

Góðan daginn, daginn, daginn.

 

Langatöng, langatöng

hvar ert þú?

Hér ér ég, hér er ég.

Góðan daginn, daginn, daginn.

 

Baugfingur, baugfingur

hvar ert þú?

Hér er ég, hér er ég.

Góðan daginn, daginn, daginn.

 

Litlifingur, litlifingur

hvar ert þú?

Hér er ég, hér er ég.

Góðan daginn, daginn, daginn.

 

Ég heyri þrumur

 Ég heyri þrumur – ég heyri þrumur.

Heyrir þú ? Heyrir þú ?

Droparnir detta – droparnir detta.

Ég er gegnblautur – ég er gegnblautur.

 

Allur matur

 Allur matur á að fara

upp í munn og ofan í maga.

Heyrið það, heyrið það,

svo ekki gauli garnirnar

 

Nammilagið

Ef regnið væri úr bleiku bangsagúmmí,

rosalegt fjör yrði þá

Ég halla mér aftur, set tunguna út,

uu-uu...

 

Ef snjórinn  væri úr sykurpúða og poppi,

rosalegt fjör yrði þá.

Ég halla mér aftur, set tunguna út,

uu-uu-......

 

Ef sólin væri á bragðið eins og sleikjó,

rosalegt.....

 

 

Bátasmiðurinn

 

Ég negli og saga

og smíða mér bát
og síðan á sjóinn

ég sigli með gát.


Og báturinn vaggar

og veltist um sæ,
ég fjörugum fiskum

með færinu næ

 

 

 

Óli og Berta

 

Óli fór til Bertu, bakaríistertu,
og bað hana að kyssa sig.
Þá sagði Berta, bakaríisterta:
“Bara ef þú elskar mig!”

Þá sagði Óli, sem var á hjóli,
“Berta, ég elska þig!”
Þá sagði Berta, bakaríisterta,
“Þá máttu kyssa mig!

 

 

 

Dúkkan hennar Dóru

 

Dúkkan hennar Dóru var með

sótt, sótt, sótt,
hún hringdi og sagði lækni að koma fljótt, fljótt, fljótt.
Læknirinn kom þá með sína tösku

og sinn hatt
-hann bankaði á dyrnar:

Ra, ta, ta, ta, tatt!
Hann skoðaði dúkkuna og

hristi sinn haus:
Hún skal í rúmið og ekkert raus!
Hann skrifaði á miða hvaða pillu hún skyldi fá:
Ég kem aftur á morgun, ef hún er enn veik þá

 

 

Sa ramm samm samm

 

:,:Sa ramm samm samm:,:

Gúllí gúllí gúllí gúllí gúllí

ramm samm samm

 

:,:Sa ramm samm samm:,:

Gúllí gúllí gúllí gúllí gúllí

ramm samm samm

 

:,:Hér er ég, hér er ég

Gúllí gúllí gúllí gúllí gúllí

ramm samm samm:,:

 

 

Gulur, rauður


Gulur, rauður, grænn og blár
svartur, hvítur, fjólublár.
Brúnn og bleikur banani,
appelsína talandi.
Gulur, rauður, grænn og blár,
svartur, hvítur,  fjólublár.

 

 

 

Ég ætla´að syngja

Ég ætla´að syngja,
ég ætla´að syngja.
Ég ætla´að syngja lítið lag.

Hérna eru augun,
hérna eru eyrun,
hérna er "nebbinn" minn
og munnurinn.

 

 

Ég ætla´…

Hérna er bringan,
hérna er naflinn,
hérna er rassinn minn
og búkurinn.

 

 

Ég ætla´…

Hérna eru fingurnir,
hérna er höndin,
hérna er olnboginn
og handleggurinn.

 

 

Hérna eru tærnar,
hérna er hællinn,
hérna er hnéð á mér
og fótleggurinn hér

      Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir

 

 

Strætó

Hjólin á strætó snúast hring, hring, hring,
hring, hring, hring,
hring, hring, hring!
Hjólin á strætó snúast hring, hring, hring
- út um allan bæinn!

Hurðin á strætó opnast út og inn,
út og inn, út og inn!
Hurðin á strætó opnast út og inn
- út um allan bæinn!

Peningarnir í strætó segja klink, klink, klink,
klink, klink, klink,
klink, klink, klink!
Peningarnir í strætó segja klink, klink, klink
- út um allan bæinn!

Fólkið í strætó segir bla, bla, bla,
bla, bla, bla,
bla, bla, bla!
Fólkið í strætó segir bla, bla, bla
- út um allan bæinn!

Börnin í strætó segja hí, hí, hí,
hí, hí, hí,
hí, hí, hí!
Börnin í strætó segja hí, hí, hí
- út um allan bæinn!

Bílstjórinn í strætó segir uss, suss, suss,
uss, suss, suss,
uss, suss, suss!
Bílstjórinn í strætó segir uss, suss, suss
- út um allan bæinn!

Flautan í strætó segir bíb, bíb, bíb,
bíb, bíb, bíb,
bíb, bíb, bíb!
Flautan í strætó segir bíb, bíb, bíb
- út um allan bæinn!

 

 

 

Dansar á pallinum

 

Anna dansar á pallinum

en Lilja skellihlær.

Bjarni er á sokkunum

og Palli datt í gær.

Guðrún keyrir kassabíl með Ástu í

og Bára kastar bolta til Davíðs.

 

Nafnalag – skipta út nöfnum eftir hentugleika

 

 

Upp á grænum, grænum…

Upp á grænum, grænum himinháum hól
sá ég hérahjónin ganga.
Hann með trommu 
- bomm, bomm, bombarombommbomm!
Hún með fiðlu sér við vanga.

Þá læddist að þeim ljótur byssukarl
sem miðaði í hvelli!
En hann hitti bara trommuna sem small
og þau hlupu og héldu velli

 

 

 

Gráðug kelling og svangur kall

Gráðug kelling hitaði sér velling
og borðaði (namm, namm, namm)
síðan sjálf (jamm, jamm, jamm)
af honum heilan helling.
 
Svangur kallinn varð alveg dolfallinn
og starði svo (sko, sko, sko)
heilan dag (o, ho, ho)
ofan í tóman dallinn

 

 

 

Garðasel

 

Garðasel, Garðasel,

það er skólinn minn.

Lita  ég og leira

leik mér við margt fleira.

Garðasel, Garðasel,

það er skólinn minn.

 

            Lag: Allir krakkar

 

 

 

Ég heyri þrumur

 

Ég heyri þrumur – ég heyri þrumur.

Heyrir þú ? Heyrir þú ?

Droparnir detta – droparnir detta.

Ég er gegnblautur – ég er gegnblautur.

 

                                       Lag: Meistari Jakob

 

 

 

 

 

Bjarnastaðabeljurnar

Bjarnastaðabeljurnar

þær baula mikið núna.

Þær eru að verða vitlausar

það vantar eina kúna.

Það gerir ekkert til,

það gerir ekkert til,

hún kemur um miðaftans bil.

 

 

 

 

 

Bangsi lúrir

 

Bangsi lúrir, bangsi lúrir,

bæli sínu í.

Hann er stundum stúrinn,

stirður eftir lúrinn.

Að hann sofi, að hann sofi

enginn treystir því.

 

              Lag: Allir krakkar

 

 

 

 

Ding dong

Ding, dong sagði lítill grænn froskur einn dag
Ding, dong sagði lítill grænn froskur
Ding, dong sagði lítill grænn froskur einn dag
og svo líka ding, dong, dongi, dongi, dongi, dongi, dong.

 

 

Uhm, eh, sagði lítil græn eðla einn dag
Uhm, eh, sagði lítil græn eðla
Uhm, eh, sagði lítil græn eðla einn dag
og svo líka uhm, eh, ull, ull, ull, ull, ull.

 

 

King kong sagði stór svartur api einn dag
King kong sagði stór svartur api
King kong sagði stór svartur api einn dag
og svo líka king kong, gojojojojo !.

 

 

Mjá, mjá sagði lítil grá kisa einn dag
Mjá, mjá sagði lítil grá kisa
Mjá, mjá sagði lítil grá kisa einn dag
og svo líka mjá, mjá - mjá.

 

 

 

 

Fiskarnir tveir

Nú ætlum við að syngja um fiskana tvo
sem ævi sína enduðu í netinu svo.
Þeir syntu og syntu og syntu um allt
en mamma þeirra sagði: ”Vatnið er kalt.”


Baba, búbú, baba, bú.
Baba, búbú, baba, bú.
Þeir syntu og syntu og syntu um allt
en mamma þeirra sagði: ”Vatnið er kalt.”

 

 

Annar hét Gunnar en hinn hét Geir,
þeir voru pínulitlir báðir tveir.
Þeir syntu og syntu og syntu um allt
en mamma þeirra sagði: ”Vatnið er kalt.”


Baba, búbú, baba, bú.
Baba, búbú, baba, bú.
Þeir syntu og syntu og syntu um allt
en mamma þeirra sagði: ”Vatnið er kalt”


 

 

 

Fimm litlir apar

Fimm litlir apar sátu uppi´í tré,
þeir voru að stríða krókódíl-
"Þú nærð ekki mér!"
Þá kom hann herra Krókódíll, hægt og rólega
- og NAMM! (smjatt-smjatt-smjatt).

Fjórir litlir apar sátu…

 

sungið þar til enginn api er eftir

 

 

Ég er rauður héri

 

Ég er rauður héri og sjáið hvað ég geri.

Svona get ég hoppað og snúið mér í hring.

Svo kann ég að klappa,

með fótunum að stappa.

Svo kann ég að telja;

einn og tveir og þrír.

 

 

 

 

Kalli litli kónguló

 

Kalli litli kónguló

klifraði upp á vegg.

Þá kom rigning

og Kalli litli datt.

Svo kom sólin og þerraði hans kropp.

Kalli litli kónguló

klifraði upp á topp.

 

 

 

Það var einu sinni api

 

Það var einu sinni api

í ofsa góðu skapi,
hann þoldi ekki sultinn

en fékk sér banana:


Banananana – (smella tvisvar í góminn)
Banananana – (smella tvisvar í góminn)
Banananana, banananana, banananana - 
(smella tvisvar í góminn).

 

Það var í örkinni hans Nóa
að dýrin fóru að róa.
Hestur, hundur, hæna
og líka krókódíll.


Krókókódíll (smella tvisvar í góm)
Krókókódíll (smella tvisvar í góm ).

Krókókódíll, krókókódíll, krókókódíll
 (smell, smell)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is