English
Dansk
Polski
ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann
Stærra letur Minna letur

Gerðu ávallt ráð fyrir því besta og gerðu þitt besta

 

Stofnun Ársins 2012
Forsíða :: Nemendur :: Lón :: gullkorn
Prenta vefsíðu

Gullkorn á Lóni

 

Lítill strákur á Lóni kom til starfsmanns og tilkynnti honum að hann væri með höfuðverk í fótunum.

 

Ein stelpan á Lóni var að fara í þriggja og hálfsárs skoðun seinna um daginn, hún kom stolt og tilkynnti einum starfsmanninum  það að hún væri að fara í þriggja í Hálsaskógi á eftir.

 

Starfsmaður og nokkur börn voru á spjalli við matarborðið allt í einu rennur einn strákurinn af stólnum og undir borð, starfsmaður segir "hann bara gufaði upp" þá heyrist í einu barninu "nei hann gufaði niður"

 

Nokkur börn sátu við borð og voru að púsla. Einn strákurinn sat á hnjánum og vinur hans leit á hann og sagði: "Ekki sitja á enninu!" (Meinti á hnjánum).

 

Starfsmaður hafði svæft börnin eftir hádegismatinn, farið svo í útiveru og í kaffi. Þegar starfsmaðurinn kemur aftur inn á deild segir ein stelpan sem hann svæfði, mjög undrandi: "HVAÐ ERTU VÖKNUÐ".

 

Barn greip um hálsinn á sér og sagði: "Ég er komin með orðabólgu". (Meinti hálsbólgu).

 

Samtal tveggja stráka.

"Pabbi minn er rafvirki". Þá svarar hinn. "Hann Eyjólfur er trévirki, hann er að byggja hús!".

 

Börn voru að leika sér í kubbum.

Ein stelpan byrjar að syngja hástöfum. "Ég er að gubba (meinti kubba), ég er að gubba", við lagið "Meistari Jakob". Þá heyrist  hátt í einum stráknum: "NEI! ÉG VAR AÐ GUBBA Í GÆR".

 

Börnin á Lóni eru að læra heitin á formunum.

Starfsmaður spyr eitt barnið: "Hvaða heitir þetta form"? (Bendir á hring). Barnið svarar: "Hringur". 

Starfsmaður spyr: "En hvaða form er þetta"? (Bendir á ferhyrning). Barnið svarar: "Ferhyrningur".

Starfsmaður spyr að lokum: "En hvað heitir þetta form"? (Bendir á þríhyrning). Barnið svarar: "Vitleysingur"!

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is