1. febrúar 2012
Febrúargleði :)
Þá er enn einn mánuðurinn liðinn og febrúar runnin upp og þá er nú ýmislegt skemmtilegt framundan !
Á næsta mánudag, þann 6. febrúar, er Dagur leikskólans og þá verður sameiginleg söngstund frammi á Skála kl. 11-11:20 og eru foreldrar boðnir velkomnir að koma og vera með :)
Í tilefni Konudagsins verður Konudagskaffi föstudaginn 17. febrúar og þá bjóðum við allar mömmur og ömmur velkomnar í morgunkaffi á milli kl. 8 og 9:30.
Þann 20., 21. og 22. febrúar eru Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur sem við höldum upp á að okkar hætti. Á Öskudaginn koma allir í náttfötunum í leikskólann því þá verður náttfataball og tilheyrandi öskudagsgleði :)
Við höfum lítið getað farið í gönguferðir um nágrennið síðustu mánuðina vegna mikils snjós en nú ætlum við að vera dugleg að nýta útiveruna í stuttar gönguferðir og stefnum að því að auka vegalengdirnar smátt og smátt með vorinu.
 |
|
- úti og inni, alltaf nóg að gera - |
 |