ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Nokkrir krakkar voru að leika í hlutverkakrók á Holti. Mikið drasl var og stungið upp á því að þau tækju til og vöskuðu upp. Allir fengu stykki til að þurrka með í uppvaskinu og þegar ein stelpan var beðin að lána sitt stykki aðeins dæsti hún og sagði: - Það er ekki hægt, það er alveg skíthreint !

Forsíða :: Nemendur :: Lón :: fréttasafn
Prenta vefsíðu
18. ágúst 2010

Velkomin á Lónið

Nú hefur síðasti hópurinn okkar lokið aðlögun og hefur þessi aðlögun gengið mjög vel. Foreldrar hafa tekið virkan þátt í aðlögun og í dvalið með okkur í þrjá daga allt að 7,5 klst. Þeir hafa " aðlagað " börnin sín að nýjum og breyttum aðstæðum með því að fylgja þeim eftir í leik og starfi þessa daga, aðstoðað þau eins og þurft hefur ásamt starfsfólki, borðað með þeim og leikið. Á morgun er fyrsti dagur allra barnanna án foreldra og það verður gaman að fylgjast með þessum hópi í leikskólanum. Við þökkum foreldrum fyrir einstaklega ljúfa samveru í aðlöguninni og framlagi þeirra til að láta alla hluti ganga vel upp. Við hlökkum til samstarfsins með nýjum Lónurum og foreldrum þeirra.

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is