ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Forsíða :: Nemendur :: Lón :: fréttasafn
Prenta vefsíðu
1. febrúar 2012 08:39

Febrúargleði :)

 Þá er enn einn mánuðurinn liðinn og febrúar runnin upp og þá er nú ýmislegt skemmtilegt framundan !

Á næsta mánudag, þann 6. febrúar, er Dagur leikskólans og þá verður sameiginleg söngstund frammi á Skála kl. 11-11:20 og eru foreldrar boðnir velkomnir að koma og vera með :)

Í tilefni Konudagsins verður Konudagskaffi föstudaginn 17. febrúar og þá bjóðum við allar mömmur og ömmur velkomnar í morgunkaffi á milli kl. 8 og 9:30.

Þann 20., 21. og 22. febrúar eru Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur sem við höldum upp á að okkar hætti. Á Öskudaginn koma allir í náttfötunum í leikskólann því þá verður náttfataball og tilheyrandi öskudagsgleði :)

Við höfum lítið getað farið í gönguferðir um nágrennið síðustu mánuðina vegna mikils snjós en nú ætlum við að vera dugleg að nýta útiveruna í stuttar gönguferðir og stefnum að því að auka vegalengdirnar smátt og smátt með vorinu.

 

 

 

 

 

meira...
9. janúar 2012 02:12

Janúar á Lóni

Gleðilegt ár kæru foreldrar og takk fyrir skemmtilegt haust með börnunum ykkar sem hafa heldur betur þroskast á þessum stutta tíma okkar saman.  

Nú í janúar er margt skemmtilegt framundan, t.d er Ljósadagur á næsta fimmtudag (12. janúar) en þá eru ljósin að mestu slökkt í húsinu en börnin mega koma með vasaljós í leikskólann og nota þau í myrkrinu sem er mjög spennandi. Mikilvægt er að merkja vasaljósin vel svo þau rati öll á rétta staði í lok dags. Einnig er gott að hafa í huga að það séu nýjar rafhlöður í vasaljósunum því það er voða leiðinlegt ef rafhlaða klárast kannski á miðjum morgni.

Föstudaginn 20. janúar er Bónadadagskaffi og þá bjóðum við öllum pöbbum og öfum að koma í morgunkaffi milli kl 8 og 9:30.

Miðvikudaginn 25. janúar höldum við svo Þorrablótið okkar og þá býðst öllum að smakka hinar ýmsu tegundir af þorramat.

Svo höldum við auðvitað áfram með hópastarfið okkar, förum alla fimmtudaga í hreyfistund, vikulega í könnunarleikinn og höldum auðvitað áfram að syngja og dansa :)

Á morgun, þriðjudag, ætlar svo Snorri hundaeftirlitsmaður að koma með hundana sína og ræða aðeins við börnin og sýna þeim hvernig á að umgangast hunda.

Hlökkum til skemmtilegra tíma saman á nýja árinu :)

meira...
22. desember 2011 01:22

Íþróttahúsferð

 Í morgun fórum við í íþróttahúsið þar sem við höfðum stóra salinn útaf fyrir okkur. Þar settum við upp smá þrautabraut, lékum með bolta, kaðla og svo var auðvitað nóg pláss til að hlaupa og leika sér. Svaka stuð og þreyttir krakkar sem voru fljótir að sofna eftir matinn :)

 

Fullt af myndum frá morgninum á myndasíðunni okkar.

 

Gleðileg jól og hafið það gott yfir hátíðarnar :)

meira...
14. desember 2011 01:08

Jóla-Lón

Jæja, nú styttist aldeilis í jólin og höfum við verið dugleg að æfa okkur að syngja jólalögin, gera jólaföndur og jólagjafir og í dag ætlum við að sjá jólaleiksýningu sem heitir Grýla og jólasveinarnir. Í morgun kíktu líka litlir jólasveinar úr Grundaskóla í heimsókn á Lónið sem vakti þó mismikla kátínu.

 

Á morgun, fimmtudag, er rauður dagur og þá væri gaman ef allir gætu mætt í einhverju rauðu eða með eitthvað rautt. Þá höldum við jafnframt litlu jólin okkar og dönsum í kringum í jólatréð.

 

 

meira...
2. desember 2011 12:23

Dagatal í desember

Þá er desember runninn upp og sá mánuður er oft annasamur í leikskólanum eins og heima, þó við reynum að stilla álaginu í hóf. Í desember eru viðburðir eins og rauður dagur og Litlu-jólin, sameiginlegar  aðventustundir allra deilda og aðventukaffi fyrir fjölskyldur. Lónið hefur gert dagatal til hliðar við dagatal leikskólans þar sem sett eru inn verkefni og viðfangsefni sem Lónarar ætla að vinna að í desember.  Dagatal desember á Lóni hér  

meira...
15. nóvember 2011 12:52

Námsáætlun í nóvember og desember

Námsáætlun Lónsins fyrir nóvember og desember er tilbúin en í áætluninni koma fram helstu þættir starfsins þessa tvo annasömu mánuði ársins. Jólin skipa stóran sess og allt sem tengist þeim en reynt verður að halda öllu skipulagi eins og kostur er, það veitir börnunum öryggi.  Deildin gerir síðan sérstakt deildar-dagatal fyrir desember þar sem helstu viðburðir og tímasetningar eru settar inn og fá foreldrar það dagatal sent heim í tölvupósti.

Námsáætlun í nóvember og desember

 - sápukúlusull úti í myrkrinu -

meira...
17. október 2011 01:39

Nýjar myndir

Fullt af nýjum myndum komnar inn hér

 

                                                             

meira...
5. október 2011 10:32

Október fréttir

 Nú er farið að kólna mikið og þá er nauðsynlegt að vera með kuldagalla, hlý föt og nóg af vettlingum meðferðis. Munið að merkja fatnað vel, líka vettlingana svo allur fatnaður rati í rétt hólf.

 

Í vetur komum við til með að fara alla fimmtudaga í hreyfistund og var fyrsti tíminn okkar í síðustu viku. Þá er sett upp þrautabraut inn í Glaumbæ og fyrir framan Víkina þar sem við æfum hinar ýmsu grófhreyfingar, samhæfingu, jafnvægi, þor o.s.frv. 

 

Í lok október byrja svo foreldraviðtölin og fljótlega hengjum við upp þá tíma sem foreldrar geta valið um að mæta á.

 

Enn eiga nokkur börn eftir að koma með myndir að heiman og við ítrekum hvað það væri gaman að fá nokkrar myndir til að setja í albúm fyrir barnið.

 

Það eru komnar nýjar myndir á myndasíðu Lóns. Endilega kíkið á :)

meira...
29. september 2011 01:03
20. september 2011 04:17
7. september 2011 10:52
26. ágúst 2011 04:01
1. júlí 2011 12:21
20. júní 2011 03:14
6. júní 2011 01:32
3. júní 2011 11:29
24. maí 2011 11:14
20. maí 2011 11:59
20. maí 2011 11:58
19. maí 2011 02:50
 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is