ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Öll höfum við eitthvað sérstakt fram að færa

Starfsmaður var að " skamma" eitt barnið sem hafði verið með læti. Þá kemur strákur til starfsmannsins og segir: - Þú mátt ekki skamma hann, hann hættir kannski bara.

 

Forsíða :: Nemendur :: Lón
Prenta vefsíðu
31. ágúst 2010

Myndir

Í vetur ætlum við á Lóninu að vera dugleg að taka myndir og setja inn á síðuna okkar svo mamma, pabbi, afi og amma og allir hinir geti fylgst með hvað við erum að bardúsa í leikskólanum yfir daginn :)

 

Myndirnar frá ágúst mánuði eru komnar inn hérna.

 

Munið að fylgjast vel með síðunni okkar ! :)  

meira  Nánar
18. ágúst 2010

Velkomin á Lónið

Nú hefur síðasti hópurinn okkar lokið aðlögun og hefur þessi aðlögun gengið mjög vel. Foreldrar hafa tekið virkan þátt í aðlögun og í dvalið með okkur í þrjá daga allt að 7,5 klst. Þeir hafa " aðlagað " börnin sín að nýjum og breyttum aðstæðum með því að fylgja þeim eftir í leik og starfi þessa daga, aðstoðað þau eins og þurft hefur ásamt starfsfólki, borðað með þeim og leikið. Á morgun er fyrsti dagur allra barnanna án foreldra og það verður gaman að fylgjast með þessum hópi í leikskólanum. Við þökkum foreldrum fyrir einstaklega ljúfa samveru í aðlöguninni og framlagi þeirra til að láta alla hluti ganga vel upp. Við hlökkum til samstarfsins með nýjum Lónurum og foreldrum þeirra.

meira  Nánar
29. júní 2010

Útivera á Lóni í júní 2010

Vorum að setja inn myndir frá Safnasvæðinu þegar við vorum að veiða síli, Langasandi að moka og sulla og Skógræktinni :)

Fullt af skemmtilegum myndum

Kveðja börn og konur á Lóni

meira  Nánar
 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is