ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Forsíða :: Nemendur :: Holt :: gullkorn
Prenta vefsíðu

Gullkorn á Holti 

 

 

 

 

 

Barn var að skoða myndir af íslensku jólasveinunum og sér þá að einn þeirra er ofaní pottinum og spyr konuna hvaða jólasveinn þetta sé. konan svarar því að þetta sé pottasleikir. Barnið skoðar þá fleiri jólasveina og sér þá að annar er með prik. Hann veltir þessum skrýtna jólasvein fyrir sér og segir svo við konuna ,,er þetta þá kannski kjánaprik"

------------------------------

 

Börnin voru að hlusta á Kiðlingana sjö og allir voru spenntir að hlusta.

Einni stelpunni bregður þegar úlfurinn kemur fram í sögunni og hún segir: "Mér brá í bakinu!".

 _ _ _ _ _ _ _ _  _ _ _ _

 

Barn kvartar undan hávaða. "Ég fæ svo mikla hálsbólgu í eyrun!".

 _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _

 

Barn veltir fyrir sér hvenær Ingunn Ríkharðsdóttir kemur og það segir: "Hvenær kemur Ingunn ríkust?".

 

 

 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is