23. janúar 2012
Þorrinn á Holti
þorravinnan hjá okkur Holturum er komin á fullt. Þema í janúar og febrúar verður gamli tíminn. Allir hóparnir eru búnir að fara í heimsókn á byggðasafnið að Görðum að skoða gamla dótið. Börnin hafa verið að koma með gamla muni og dót að heiman sem verður haft til sýnis út Þorrann. Við höfum aðeins breytt valinu hjá okkur, tekið út alla plastkubba og sett inn trékubba, dýr, bein og skeljar og á föndurborðið höfum við sett inn vefi, ull og fleira sem tengist gamla tímanum. Í söngstundum syngjum við Þorralög og aðra gamla texta eins og t.d Fyrr var oft í koti kátt. Í hópastarfi munum við flétta alla námsþættina inn í þemað. Á miðvikudaginn verður svo þorrablót hjá okkur og þá væri gaman ef allir kæmu klæddir í lopapeysur.
 |
|
- Þórkatla Þyrí, Hákon Freyr og Erik Heiðar tilbúin á þorrablót - |