ForsíðaNemendurForeldrarUm skólann

Kurteisi er góð leið til að sýna öðrum virðingu

 

Á aðventunni erum við að skoða fjárhúsið með jötunni og Jesú-barninu. Eitt barnið spyr af hverju Jesús liggi í svona grasi og rifjað er upp af hverju Jesú-barnið fæddist í fjárhúsi. Þá segir einn strákurinn undrandi: - Það er enginn Jesú í kindahúsinu hans afa !! ( afinn býr í sveit)

 

Forsíða :: Nemendur :: Holt :: Fréttasafn
Prenta vefsíðu
23. janúar 2012

Þorrinn á Holti

þorravinnan hjá okkur Holturum er komin á fullt. Þema í janúar og febrúar verður gamli tíminn. Allir hóparnir eru búnir að fara í heimsókn á byggðasafnið að Görðum að skoða gamla dótið.  Börnin hafa verið að koma með gamla muni og dót að heiman sem verður haft til sýnis út Þorrann. Við höfum aðeins breytt valinu hjá okkur, tekið út alla plastkubba og sett inn trékubba, dýr, bein og skeljar og á föndurborðið höfum við sett inn vefi, ull og fleira sem tengist gamla tímanum. Í söngstundum syngjum við Þorralög og aðra gamla texta eins og t.d Fyrr var oft í koti kátt. Í hópastarfi munum við flétta alla námsþættina inn í þemað. Á miðvikudaginn verður svo þorrablót hjá okkur og þá væri gaman ef allir kæmu klæddir í lopapeysur.

meira...
10. janúar 2012

Fyrstu dagarnir á nýju ári

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir samveruna á síðastliðnu hausti.  

Í janúar og febrúar ætlum við að gera margt skemmtileg og fræðandi. Við ætlum að taka þorrann fyrir og fræðast aðeins um lífið eins og það var í gamla daga. Við munum í tengslum við þetta heimsækja Byggðasafnið og skoða hluta af því.

Við ætlum líka að bjóða ykkur í smá morgunkaffi á bónda- og konudeginum.

Annars má sjá nýja námsáætlun fyrir janúar og febrúar hér.

meira...
23. desember 2011

Jólakveðja

Kæru foreldrar og börn

Óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Takk fyrir samveruna á árinu sem er að líða. Njótiði samverunnar um jól og áramót. 

 

 

meira...
16. desember 2011

Mikið um að vera á Holti

 Það er búið að vera nóg um að vera á Holti síðustu daga. Við skemmtum okkur vel á jólaleikritinu "Grýla og jólasveinarnir" sem Þórdís Arnljótsdóttir sér um og rauði dagurinn heppnaðist líka mjög vel. Allir skemmtu sér vel og við fengum jólasveina í heimsókn frá Grundaskóla. Eftir jólaballið fengu allir heitt súkkulaði og piparkökur. Komnar eru inn nýjar myndir.

 

meira...
7. desember 2011 02:04

Ástu og Hafrúnarhópur á Aggapalli

Í morgun fórum við í Ástu og Hafrúnarhóp niður á Aggapall með heitt kakó og jólaskreyttum aðeins pallinn. Þessi ferð var farin í staðinn fyrir skógræktarferð vegna kulda en við fengum samt sem áður yndilsegt veður og allir kátir og glaðir eftir ferðina :) Það eru komnar myndir úr ferðinni.

Á morgun fara svo Ernu og Guðbjargarhópur niður á Aggapall. 

meira...
6. desember 2011 09:52

Myndir

Nokkrar nýjar myndir komnar inn sem sýna jólaföndur og hvað við erum dugleg að gefa smáfuglunum í þessum kulda :)

Hákon Freyr var 4 ára 5. desember, til hamingju. 

meira...
2. desember 2011 11:43

Dagatalið á Holti í desember

Þá er desember runninn upp og alltaf nóg að stússast. Ýmsir viðburðir og viðfangsefni eru á döfinni.  TIl  að foreldrar séu sem best upplýstir um skipulag og tímasetningar þá hefur deildin gert dagatal fyrir desember með helstu upplýsingum. Foreldrar fá dagatalið líka sent heim í tölvupósti. Ef eitthvað er óljóst þá eru forelrdar hvattir til að hafa samband við starfsfólk deildarinnar.

meira...
29. nóvember 2011 03:05

Nýjar myndir

Nokkrar nýjar myndir eru komnar inn í myndamöppuna Dagur íslenskrar tungu

meira...
23. nóvember 2011 02:48

Líf og fjör

Frábæru foreldrar, takk fyrir komu ykkar á Degi íslenskrar tungu, gaman að sjá hversu margir gátu komið og verið með okkur. Börnin stóðu sig með prýði eins og alltaf. Þau eru snillingar.  Jæja nú erum við farin að syngja jólalögin með börnunum, enda styttist í jólahátíðina. Við á Holti ætlum að hafa desember notalegan og rólegan. Komnar eru nýjar myndir.

 

meira...
15. nóvember 2011 12:58

Námsáætlun nóvemberog desember

Námsáætlun Holtsins fyrir nóvember og desember er tilbúin en í áætluninni koma fram helstu þættir starfsins þessa tvo annasömu mánuði ársins. Jólin skipa stóran sess og allt sem tengist þeim og síðan er Dagur íslenskrar tungu á morgun, miðvikudaginn 16. nóvember, en þá bjóða börnin á Holti  foreldrum sínum á smá skemmtun kl :13.15  sem þau hafa undirbúið í tilefni dagsins. 

 

 

Námsáætlun nóvember og desember

 - vinastund á Holti, nudd með boltum -

meira...
15. nóvember 2011 09:52

Dagur íslenskrar tungu

Á morgun ætlum við að bjóða ykkur til okkar í tilefni af degi íslenskrar tungu.

Við ætlum að hafa smá sýningu frammi á Skála kl. 13:15 og bjóða svo uppá kaffisopa inn á deild á eftir.

Hlökkum til að hitta ykkur

Kveðja frá öllum á Holti

meira...
9. nóvember 2011 01:25

Vinarkveðja til ykkar

Af okkur er allt gott að frétta. Núna erum við að æfa okkur fyrir Dag íslenskrar tungu. Við ætlum að halda sýningu fyrir ykkur foreldra á miðvikudaginn 16.nóv kl 13.15.  Vonandi komast sem flestir. Við erum líka að vinna með dygðina ,, vinsemd", út frá þeirri vinnu höfum við á Holti búið til vinatré. Þar hafa börnin búið til laufblöð, könglar verið hengdir á, fuglar hafa verið búnir til og tréið hefur fengið ljósaseríu til  að lýsa það upp í myrkrinu. Frábærar hugmyndir hafa litið dagsins ljós hjá börnunum. Nýjar myndir komnar inn

 

 

Við viljum minna ykkur foreldra á að athuga fatakassa barna ykkar, hvort að það vanti eitthvað í þá. Einnig biðja ykkur um að vera með auka vettlinga, því nú er veðurspáin næstu daga vel blaut. Við  minnum ykkur á að  á föstudaginn 11 .nóv er starfsdagur í leikskólanum og þá er skólinn lokaður.

 

meira...
19. október 2011 12:33
5. október 2011 02:26
22. september 2011 02:37
14. september 2011 01:39
30. ágúst 2011 02:37
28. júní 2011 09:51
15. júní 2011 02:08
8. júní 2011 02:29
1. júní 2011 03:53
4. maí 2011 03:44
4. maí 2011 11:44
15. apríl 2011 03:48
 
Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 431-2004 | gardasel@akranes.is