Foreldrafélag Garðasel 2011 -2012

Foreldrafélag Garðasels er félag foreldra/forráðamanna allra barna í leikskólanum. Á foreldrafundi að hausti er tilnefnt eða kosið í foreldraráð og þá er miðað við að einn fulltrúi komi frá hverri deild.
Foreldrafélag fundar með leikskólastjóra eftir þörfum. Þar eru málefni leikskólans rædd, starfið framundan, ýmsar uppákomur og annað sem upp á borðið kemur. Foreldrafélagið stendur fyrir ýmsum uppákomum, s.s leiksýningum, fyrirlestrum og sumarhátið í júní.
Árgjald í ferða - og skemmtisjóð foreldrafélagsins er innheimt einu sinni á ári með gíróseðli, 2400 kr. Foreldrar eru hvattir til að greiða gjaldið skilvíslega því þannig er tryggt að allir foreldrar leggi í þennan sameiginlega sjóð sem eingöngu er notaður fyrir börnin.
Starfsáætlun foreldrafélags fyrir skólaárið 2011- 2012