Ákvarðanir fjölskylduráðs /bæjarráðs um leikskólamál

Við hvetjum foreldra til að fylgjast með fundargerðum á síðu Akraneskaupstaðar, þar er að finna upplýsingar sem snúa að málefnum leikskólanna.
|
7.ágúst 2011
Fjölskylduráð hefur ákveðið að hlutfall fagmenntaðs starfsfólks í leikskólum Akraneskaupstaðar skuli vera 75 % af stöðugildum fyrir utan stjórnun og eldhús. Leikskólum er skylt samkvæmt lögum frá júní 2008 að hlutfall leikskólakennara skuli að lágmarki vera 2/3 hlutar starfsfólks en leikskólastjórum er síðan heimilt að ráða leikskólakennara eða annað fagmenntað starfsfólk í það sem vantar upp á til að ná 75 % hlutafallinu. Hér má sjá fundargerð og greinargerð fjölskylduráðs með ákvörðuninni. |
|
|
10. ágúst 2010 Fjárhagsáætlun 2010 - endurskoðun |
|
Fjölskylduráð leggur til við bæjarráð að eftirfarandi breyting verði gerð á fjárhagsáætlun 2010.
- Að greitt verði fyrir þátttöku starfsfólks í hlutastarfi á skipulagsdögum í leikskólunum samtals kr. 650.000.
- Að veitt verði sérstakt framlag til að halda foreldrafundi í leikskólunum samtals kr. 460.000.
- Að veitt verði sérstakt framlag til að ýmsa yfirvinnu í leikskólunum samtals kr. 382.000.
- Að gjaldskrá leikskóla og skóladagvistar verði breytt á þann veg að almennt gjald fyrir hverja klukkustund verði það sama óháð lengd dvalartíma. Breytingin mun leiða til u.þ.b. 3.000.000 tekjusamdráttar á ári. Vegna haustannarinnar verður tekjutapið um kr. 1.000.000. Breytingin taki gildi 1. september.
| |
|
|
12.nóvember 2010
Sumarlokun leikskóla sumarið 2010.
Bréf fjölskylduráðs, dags. 05.11.2009, þar sem lagt er til að sumarlokun leikskólanna 2010 verði 4 vikur í stað 5 vikur. Fjölskylduráð telur að það óhagræði sem 5 vikna lokun leikskólanna hefur í för með sér fyrir foreldra vegi þyngra en sú fjárhæð sem sparast.
Bæjarráð staðfestir tillögu Fjölskylduráðs |
|
31. ágúst 2009
Viðbragðsáætlanir.
Leikskólarnir hafa verið að undirbúa viðbragðsáætlanir sem Alvarnardeild ríkislögreglustjóra hefur farið fram á að verði gert í öllum skólum landsins. Í tengslum við gerð viðbragðsáætlunar var farið yfir "Reglur um viðbrögð og aðgerðir vegna undirmönnunar í leikskólum, sem skapast í veikindum eða öðrum fjarvistum starfsmanna í leikskólum Akraneskaupstaðar." Rætt um reglurnar og fjölskylduráð gerir ekki athugasemdir við þær.
|
|
|
9.júlí 2009
Breytingar á gjaldskrá leikskóla frá og með 1. ágúst 2009
Hækkun á fæðisgjaldi leikskóla Akraneskaupstaðar var samþykkt á fundi bæjarráðs Akraness 9. júlí 2009. Fæðisgjald mun hækka um 5,5%. Gjald fyrir morgunverð, hádegisverð auk síðdegishressingar mun hækka samtals um 316 krónur á mánuði. Breytingin tekur gildi 1. ágúst 2009. Bæjarráð fól framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu að koma breytingu á gjaldskránni í framkvæmd. Með þessum breytingum var ný gjaldskrá fyrir leikskólana staðfest.
Hækkun frá 1. ágúst 2009 felst í því að gjald umfram 8 klst. á dag hækkar.
Dvalartími 8,5 klst. hækkar um kr. 2.265 frá fyrri gjaldskrá, dvalartíminn 9 klst. hækkar um kr. 5.765 og sama hækkun kr. 5.765 er vegna 9,5 klst.
Skoða nýja gjaldskrá. |
|
|
|
11. febrúar 2009
Sumarlokun leikskóla sumarið 2009.
Á síðasta fundi fjölskylduráðs var ákveðið að leita samráðs við foreldraráð leikskólanna og var haldinn fundur með þeim sl. mánudag. Á þeim fundi var ákveðið að gera könnun meðal foreldra leikskólabarna og kanna hvaða fjögurra vikna tímabil hentaði foreldrum best. Foreldraráðin vilja halda fundi með foreldrum áður en könnunin verður send út. Drögum að foreldrakönnun var dreift á fundinum. Foreldraráðin telja að hver leikskóli eigi að haga sumarlokun í samræmi við óskir meirihluta foreldra.
Fjölskylduráð samþykkir þessa tillögu foreldraráðanna.
Í könnuninni verður einnig spurt um viðhorft foreldra til þess hvort æskilegra sé að að hafa fjórða skipulagsdaginn eða loka leikskólunum frá kl. 14:00 fjóra föstudaga yfir skólaárið. Í könnuninni verður einnig kannað hvort foreldrar hafa hug á að barnið taki lengra sumarfrí en 4 vikur. En í verklagsreglum leikskóla er kveðið á um að leikskólabörn skulu taka 4 vikna samfellt sumarfrí. Reiknað er með að ákvörðun um sumarlokun liggi fyrir í byrjun mars. |
| |
|
11.febrúar 2009
Verklagsreglur leikskóla.
Opnunartími leikskóla Akraneskaupstaðar er nú frá kl.7.30 -17.00. Skólinn lokar 17:00 í stað 17:30 eins og var og samkvæmt nýjum verklagsreglum sem samþykktar voru 11. febrúar 2009 þá þurfa að lágmarki 5 börn að vera með skráðan tíma eftir kl: 17.00 í leikskólanum til að að lengja opnunartíma í lok dags |
|
|
|
|